August 6th, 2026

Nú getur þú sent PDF skjöl í rafræna undirritun beint úr Vergo.
Undirritanir í aðalvalmynd — smelltu á Ný undirritunarbeiðni, dragðu inn PDF skjölin, veldu mál og bættu við viðtakendum.
Beint af skjali í máli — hægrismelltu á PDF skjal undir Skjöl í málinu og veldu Rafrænt undirrita.
Öll PDF skjöl er hægt að senda í rafræna undirritun.
Allt að 25 skjöl í hverri beiðni, hámark 100 MB á skjal
Veldu staðsetningu undirskrifta á skjalinu
Skilaboð til undirritenda og tilkynning til ábyrgðarmanns máls
Undirrituð skjöl vistast sjálfkrafa á málið
Yfirlit yfir allar beiðnir með stöðu, fjölda undirritana og dagsetningum
Verðskrá fyrir rafrænar undirritanir má finna á heimasíðu Vergo hér, en við leggjum metnað okkar í að bjóða lægra verð en helstu samkeppnisaðilar á markaðnum. Aðal ávinningurinn við þessa nýjung er þó sá að þú sleppur algjörlega við að flakka milli kerfa eða handvirkt færa skjöl þar á milli. Allt ferlið klárast á einum stað, sem sparar bæði dýrmætan tíma og fyrirhöfn.
Í næstu útgáfu bætum við við lausn fyrir erlenda aðila sem ekki hafa íslenska kennitölu, svo þeir geti einnig undirritað skjöl rafrænt.