Viðbætur

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 1 day ago

Ef þú hugsar um öll mál sem töflu að þá er viðbót auka dálkur sem þú getur bætt við. Tökum dæmi. Segjum að við viljum bæta við Slysdegi á Slysamál:

  1. Opna stillingar:

    • Farðu í Stillingar og síðan Viðbætur.

  2. Stofna viðbót:

    • Smelltu á Stofna hnappinn.

  3. Skrifa inn heiti.

  4. Velja málaflokk:

    • Ef maður velur ekki málaflokk þá gildir viðbótin fyrir öll mál.

  5. Týpa:

    • Í okkar tilfelli er þetta dagsetning.

  6. Krafist Já/Nei:

    • Ef Krafist, þá er ekki hægt að búa til mál með völdum málaflokki nema að vera búinn að setja inn gildi fyrir viðbót.

Þegar við búum núna til slysamál eða breytum, eftir að hafa bætt við þessari viðbót, þá ættum við að sjá hana í seinasta skrefinu:

Þegar við skoðum öll mál að þá ættum við að geta gert þennan nýja dálk sýnilegan:

Einnig ættir þú að sjá núna viðbótina undir málinu sjálfu: