Gjaldskrá
Upplýsingar um gjaldskrá, sértæk tímagjöld og tímagjaldskrá mála
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 1 day ago
Hvernig gagnast gjaldskráin?
Þegar þú skráir tíma, gjald eða útlagðan kostnað á mál er sjálfgefið að upphæðin sé tekin úr gjaldskrá. Þú getur hins vegar breytt upphæðinni í það sem þú vilt. Upphæðin þarf því ekki endilega að fylgja gjaldskránni.
Hvernig er gjaldskráin búin til?
Hægt er að búa til gjaldskrá á þrjá mismunandi vegu:
Almenn gjaldskrá
(Stillingar > Gjaldskrá)
Hér er hægt að stofna þrjár mismunandi tegundir gjalda:
Tímagjald.
Útlagður kostnaður.
Fast gjald.
Þú stimplar inn Heiti. Sem dæmi fyrir tímagjald gæti það verið Fulltrúi eða Eigandi. Síðan getur þú farið í Stillingar > Notandi og breytt því hvaða tímagjald er tengt við þinn notanda.
Sérkjör viðskiptavinar
(Viðskiptavinir > {Valinn viðskiptavinur} > Sérkjör)
Sérkjör viðskiptavinar ganga framar almennri gjaldskrá.
(Einnig er hægt að stilla sérkjör viðskiptavinar á máli með skráðan viðskiptavin)
Sérkjör máls
Málaskrá > {Valið mál} > Sérkjör > Mál
Sérkjör máls ganga framar bæði almennri gjaldskrá og sérkjörum viðskiptavinar fyrir tiltekið mál.
Festa tímagjald á máli
Venjulega er tímagjald valið út frá stillingum notanda(Stillingar > Notandi). Ef þú vilt hins vegar festa tímagjaldið fyrir alla notendur á tilteknu máli getur þú gert það undir:
Málaskrá > {Valið mál} > Stillingar > Málskostnaður > Festa tímagjald