Búa til SharePoint síðu
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 1 day ago
Áður en þú getur tengst OneDrive þarft þú að búa til SharePoint síðu.
Byrjaðu á því að skrá þig inn í SharePoint
Þú ættir að geta gert það héðan: https://m365.cloud.microsoft/apps/
Eftir að þú skráir þig inn, veldu þá SharePoint:

Veldu svo Create site:

Þá færðu upp valmynd þar sem mikilvægt er að þú veljir Team site:

Síðan velur þú template. Veldu þar Standard:

Síðan þarf að fylla út í þetta form hér að neðan. Gott að velja lýsandi nafn. Mælum með að hafa Vergo í nafninu.

Á næstu síðu þarft þú svo að velja hvort síðan sé Public eða Private. Betra er að velja Public hér til að auðvelda kerfisstjóra að tengja. Það er alltaf hægt að breyta seinna til baka. Athugið að Public síða er ekki opin út á við. Munurinn á Public og Private síðu er sá að allir starfsmenn hafa aðgang að Public síðu á meðan að það þarf boð í Private síðu.

Ef þú valdir að búa til Private síðu þá þarftu að bæta við þeim notendum sem þú villt að hafi aðgang að OneDrive. Ef þú valdir Public síðu, þá geturu sleppt því að bæta þeim við þar sem þeir eru sjálfkrafa með aðgang.

Eftir þetta ætti síðan þín að vera klár. Ef þú lendir í vandræðum heyrðu þá í notendaþjónustu Vergo eða sendu tölvupóst á vergo@vergo.is