Payday
Við mælum með Payday ef þú hefur ekki þegar ákveðið bókhaldskerfi.
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 1 day ago
Fyrsta sem þú þarft að gera er að innskrá þig inn í Payday og velur "Stillingar" -> "Fyrirtæki" -> "Samþættingar". Þar undir getur þú smellt á takkann "Bæta við"

Þar velur þú PaydayAPI í "Tegund tengingar" og skýrir tenginguna "Vergo". Áður en þú smellir á staðfesta þarftu að afrita ClientSecret og ClientId.

Þegar þú hefur smellt á staðfesta þá getur þú farið í Vergo viðmótið. Þar undir Stillingar -> Tengingar -> Bókhaldstenging -> Tengjast. Þá opnast listi yfir bókhaldstengingar og smellir þar á "Stofna nýja tengingu"


og sett þar inn ClientId og ClientSecret sem þú afritaðir úr Payday og smellir á staðfesta.
