Að breyta verði á þegar skráðum tímum

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 1 day ago

Til að breyta verði á þegar skráðum tímaskráningum þegar þú t.d. breytir verðskrá eða breytir um tímagjald þá er best að fara undir listann Málskostnaður. Þar eru þá síað eftir Vinnustundum undir Tegund. Passa að sleppa tímabili ef við á og velja t.d. ákveðinn starfsmann

Athugið að mest er hægt að breyta 500 færslum í einu en þá þarftu að velja 500 færslur á blaðsíðu í listanum

Svo getur þú annahvort handvalið með því að haka í þær færslur sem á að breyta eða velja allar færslur í einu með því að haka í boxið sem er efst


Svo þegar þú hefur valið það sem á að breyta smellir þú á Breyta takkan.

Þar getur þú annaðhvort flett upp í gjaldskránni því tímagjaldi sem þú vilt breyta í eða slegið upphæðina beint inn. Svo smellir þú á staðfesta takkann.