Að gefa út reikninga
Reikningagerð
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 1 day ago
Það er einfalt að gefa út reikning í Vergo, hvort sem tenging við bókhaldskerfi er notuð eða ekki. Hér er farið yfir hvernig hægt er að stofna reikninga.
Skref 1: Velja "Reikningar" í valmynd
Fyrst skaltu fara í „Reikningar“ í vinstri valmyndinni. Þar birtist yfirlit yfir alla reikninga sem hafa verið gefnir út hingað til. Til að stofna nýjan reikning skaltu smella á hnappinn „Fara í reikningagerð“ eða velja beint "Reikningagerð" í valmynd undir "Reikningar".

Skref 2: Velja mál/greiðanda
Eftir að hnappurinn hefur verið valinn opnast yfirlit yfir mál sem eru með óreikningsfærð atriði. Hér má sjá:
Heildarupphæð útistandandi reikninga (efst).
Leitarmöguleika og síur til að finna tiltekin mál.
Lista yfir mál með óreikningsfærð atriði.
Athugið að smella bara einhversstaðar á línu í listanum til að velja en ekki linkinn á málsnúmerið, en það er til að opna málið.
Þegar þú smelli á línu í listanum þá virkjast takkinn "Gefa út reikning".

Skref 3: Fínstilla leit með síum
Til að einfalda leitina má nota eftirfarandi síur:
Afmörkun: Sláðu inn leitarorð til að finna ákveðið mál eða ákveðinn viðskiptavin.
Ábyrgðarmannasía: Skoðaðu mál eftir ábyrgðarmönnum.
Opin eða lokuð mál: Veldu hvort þú vilt sjá opin mál, lokuð mál eða bæði.
Tímabilsía: Veldu tímabil til að einblína á óreikningsfærð atriði á ákveðnu tímabili.
Hægt er að sameina síur til að fá nákvæmari niðurstöður.

Skref 4: Velja atriði til reikningsfærslu
Velja útgáfudag reiknings: Skráðu útgáfudag reikningsins.
Velja reikningsatriði: Hakaðu við þau atriði sem eiga að koma á reikning.
Vista reikning: Smelltu á hnappinn „Vista reikning“ til að klára útgáfuna.

Viðbótarmöguleikar
Breyta/Eyða færslu: Smelltu á aðgerðartáknið aftast í hverri línu færslu til að breyta eða teyða færslum.
Breyta mörgum: Smelltu á hnappinn „Breyta mörgum“ ofarlega til hægri til að breyta þeim færslum sem eru valdar.
Bæta við nýjum gögnum: Til að bæta við tímum, vörum eða öðrum kostnaði skaltu nota hnappinn „Stofna“.
Muna útgáfudag: Hakaðu við "Muna útgáfudag" til að muna næsta útgáfudag ef þú ert að gefa út marga reikninga á sama útgáfudegi.
Stofna í bókhaldskerfi: Hakaðu við "Stofna reikning í bókhaldskerfi" til að stofna sölureikning í bókhaldskerfi. Þessi möguleiki er bara sýniegur ef tenging er virk við bókhaldskerfi.