Almennar upplýsingar um OneDrive (SharePoint) tengingu

Allar upplýsingar varðandi OneDrive (SharePoint) tengingu

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 1 day ago

Hér er að finna aðrar upplýsingar varðandi OneDrive tengingu:

Almennar upplýsingar

Við bjóðum upp á tengingu við Microsoft OneDrive (SharePoint). Þessi tenging gerir þér m.a. kleift að vinna með sömu skjölin bæði í vefviðmóti Vergo og á OneDrive drifi á tölvunni þinni.

Þegar tengingin er orðin virk getur þú séð nýjan OneDrive flipa undir Mál > Skjöl:

Athugaðu að ef þú varst að nota gamla skjalakerfið að þá munu þau skjöl enn þá vera aðgengileg undir flipanum Skjöl. Þau færast ekki sjálfkrafa yfir.

Einnig munt þú getað skoðað öll OneDrive skjöl undir Öll skjöl:

OneDrive tengingin nær yfir allt fyrirtækið

Eftir að tengingu hefur komið á þá munu allir starfsmenn geta nýtt sér hana. Öll skjöl eru geymd á svokallaðri SharePoint síðu sem er í þinni eigu.

Fyrir hvert mál verður búin til mappa í OneDrive. Þessar málamöppur eru aðgangsstýrðar. Einungis starfsmenn tengdir við málið eða stjórnendur hafa aðgang að málamöppu.


Hvernig tengjast mál við OneDrive möppur?

Þegar þú býrð til eða opnar mál þá mun Vergo búa til möppu í OneDrive og gefa réttum aðilum aðgang að henni. Ef málið hefur málsnúmerið 2025-0001 og heiti máls er "Skaðabætur Stórhöfði" og nafn viðskiptavinar er "Jón Jónsson" mun eftirfarandi mappa vera búin til:
/Projects/Jón Jónsson - Skaðabætur Stórhöfði (2025-1)

Ef þú lokar málinu eða eyðir því þá færist mappan undir:
/Archived Projects/2025/Jón Jónsson - Skaðabætur Stórhöfði (2025-1)

Ef þú ert að tengjast við OneDrive og villt að það verði búnar til OneDrive möppur fyrir öll mál sem þegar hafa verið búin til, án þess að þurfa handvirkt að opna öll þessi mál, hafðu þá samband við Vergo.