Að tengja bókhaldskerfi við Vergo
Tengstu bókhaldskerfi til að auka skilvirkni
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 1 day ago
Að tengja bókhaldskerfi við Vergo er einfalt ferli sem fer eftir því hvaða bókhaldskerfi þú notar eða ætlar að nota fyrir fyrirtækið þitt. Bókhaldskerfi þjónar tveimur lykilhlutverkum í tengslum við Vergo:
Fjárhagskerfi
Tekju- og gjaldfærsla: Öll fyrirtæki þurfa að halda utan um tekjur, gjöld, eignir og skuldir í bókhaldskerfi. Vergo tengist ekki beint fjárhagsfærslum nema þegar kemur að skráningu tekna, hvort sem það er í gegnum sölukerfi eða sjálfstæða tekjuskráningu með Vergo sölureikningum.
Sölukerfi
Útgáfa sölureikninga: Það er algengt að nota bókhaldskerfi til að gefa út sölureikninga. Ef þú kýst að nota þessa aðferð, sér Vergo um að útbúa forskrift reiknings sem er síðan lesin inn í bókhaldskerfið og breytt í sölureikning. Vinnuskýrsla getur fylgt með ef þú stillir tengingu þannig.
Athugið að viðskiptavinur þarf að vera skráður í bæði Vergo og bókhaldskerfið og kennitala þarf að passa.

Skref til að tengja bókhaldskerfi við Vergo
Ferlið til að tengja bókhaldskerfi við Vergo er háð því hvaða kerfi þú notar. Hér eru leiðbeiningar fyrir þau kerfi sem Vergo styður:
Velja Stillingar: Finndu stillingahlutann.
Velja Tengingar: Velja "Tengjast" við valmöguleikann "Bókhaldstenging".
Veldu þar bókhaldskerfið sem þú vilt tengja. Hver reitur í þessu viðmóti er útskýrður til að auðvelda tenginguna.
Með þessum skrefum geturðu auðveldlega tengt Vergo við bókhaldskerfið þitt og tryggt að reikningagerð verði sjálfvirk og örugg.
Leiðbeiningar
Konto (Leiðbeiningar í vinnslu)